|
Sádí-Arabía er konungsríki sem nær yfir stærstan hluta Arabíuskagans með landamæri að Írak, Jórdaníu, Kúveit, Óman, Katar, Barein, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Jemen, með strönd að Persaflóa í austri og Rauðahafi í vestri. Áætlaður mannfjöldi í landinu er 27,5 milljónir, landið er u.þ.b. 2.150.000 km² að stærð.
Sádí-Arabía er stundum nefnt „Land hinna tveggja heilugu moskna“ og er þá átt við moskurnar í Mekka og Medina tvo helgustu staði íslam. Stofnandi konungsríkisins, fyrsti konungur þess og sá sem ber ættarnafn það sem landið er kennt við var Abdul-Aziz bin Saud (betur þekktur sem Ibn Saud á Vesturlöndum). Á 18. og 19. öld barðist Al Sáud-fjölskyldan við nokkrar aðrar stór-fjölskyldur um yfirráð á Nejd-hásléttunni á Arabíuskaganum. Eftir að Ibn Saud hafði náð Ríad liðu þrír áratugir þangað til að Sádí-Arabíska konungsveldið var stofnað með aðstoð Breska heimsveldisins.
Helsta stoð Sádí-Arabíska efnahagsins er útflutningur olíu. Sádí-Arabía er stærsti útflutningsaðili heimsins og leiðandi aðili í OPEC, samtökum olíuframleiðsluríkja. Um 90% af útflutningi Sádi-Arabíu er olía og tekjur af sölu olíu eru um 75% af landsframleiðslu. Ghawar er talin vera stærsta olíulind heimsins, áætlað er að um ¼ af olíu þeirri sem notuð er í dag komi þaðan.
Tengill
1. Venjulega talin til Asíu landfræðilega, en oft talin til Evrópulanda af menningarlegum og sögulegum ástæðum.
Questions for article:
|